21.1.2009 | 00:56
Rugl
Skil ekki fólkið sem er á móti því að við séum að mótmæla. Skil ekki þessa grumpy gömlu fýlukalla sem eru að kvarta yfir mótmælum. Bara sorry en þú verður lööööööngu dauður þegar við erum ennþá að borga þessar helvítis skuldir sem ríkisstjórn er búin að skuldsetja okkur í, þetta var bara algjör fáviti sem var þarna í viðtali við Kastljósið í kvöld.
Lögreglan hagaði sér víst fáránlega í dag en í kvöld var hún mjög fín.
Við lentum á spjallinu við nokkra lögreglumenn, það tók pínu tíma að ná sambandi við þá í fyrstu. Þurftum að stara á einn þeirra í svona 30 mín sirka og þá byrjaði hann að tala og fékk bara munnræpu. Hann talaðu um allt milli himins og jarðar og allt sem hann sagði meikaði algjörlega sens. Hann var búinn að fá grjót og allan fjandann í sig í dag og var búinn að vera á vakt frá því klukkan 8 í morgun og stendur þar örugglega enn.
Lögreglurnar fjórar, vinir okkar voru alltaf að vara okkur við og sögðu meðal annars að við ættum að fara að passa okkur að standa svona nálægt þeim og þeir báðu okkur að lofa sér að við færum strax í burtu efað það væri kastað mikið meira í lögregluna. Þessar löggur voru bara mjög góðar þannig ég býst ekki við að löggan hafi gert e-h í dag nema það sem þeir þurfa að gera.
Lögreglurnar eiga líka fjölskyldur sem þær þurfa að hugsa um og þetta er vinnan þeirra sem þeir þurfa að halda. Löggurnar eru svo hjartanlega sammála okkur en ef þeir ætla að halda vinnunni þá mega þeir ekki mótmæla. Þó að þeir ganga nú stundum of langt þá held ég að við gætum nú líka róað okkur í sambandi við löggurnar. Hver var til dæmis ástæðan að ganga á eftir löggunni og berja hana í hausinn með sleif. Fólkið var bara að bíða eftir látum. Til hvers að ráðast á lögguna, hvað græða mótmælendur á því?
Frekar ætti það bara að ráðast á Geir H.Haarde og Davíð Oddson, það kemur mér nú bara á óvart að þeir séu báðir ennþá á lífi :)
|
Beittu kylfum á mótmælendur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.9.2008 | 17:32
Klukkuð
4 störf.
Fréttablaðinu sem blaðberi
Kornið
Hvammsval
Aktu Taktu
4 bíómyndir
Die Hard10 things i hate about you
Gothika
Home Alone
4 staðir sem ég hef búið á
KópavogiFellsendi
4 sjónvarpsþættir
Neighbourse
Missing
Medium
Friends
4 staðir í fríum
Spánn
Akureyri
Hálendið
Einhverstaðar á Íslandi
4 netsíður
myspace.comfacebook.com
mbl.is
mk.is/nmk.is
fernt matarkyns
Kjúklingaborgari
Lambalæri ala Lella
Pizza ala Lella
Bjúga
4 óskastaðir akkúrat núna
Annarsstaðar en liggjadi uppi í sófa.Argentínu
Spán
Afríku
4 sem ég klukka
ollanna
blogger
sibbulina
reynalds
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2008 | 16:37
neinei ekkert að þessu.
Ég var í þessari busavíxlu og mér fannst hún ekkert smá niðurlægjandi. Svo er verið að tala um að þetta hafi verið allt voða friðsælt, böðlarnir eins og þeir eru kallaðir voru öskrandi á okkur nemana um að við værum ógeðsleg og algjörir viðbjóðir og svona voðalega falleg orð.
Þessi busun byrjaði á því að það var komið inn í stofurnar okkar kallað okkur ógeð og látið okkur setja skóhlífarnar á hausinn svo þeir þekktu okkur. Svo vorum við látin fara fram og gert voða lítið þar nema svo áttum við að labba meðfram eithverjum gangi og bara innan við límböndin svo var stoppað og við áttum að hoppa og syngja "Ég er busalufsa!" Svo var allur gangurinn orðinn að svitakófi þannig það var látið okkur fara að ná í skóna okkar og fara út. Þar áttum við að krjúpa eins og er sýnt á myndbandinu.
Við vorum látin krjúpa í svona sirka klukkutíma kannski einn og hálfan sem er ekki þæginlegt og sumir fengu ekki einu sinni að standa neitt upp, það var gert mismunandi hluti við fólk og ekkert við suma ég slapp frekar vel þar, annað en sumir sem fengu egg og edik yfir sig allan og svoleiðis gaman.
Svo löbbuðum við í svokölluðu busagöngunni niður í hlíðargarð þar sem var látið okkur drekka þennan ógeðisdrykk, það var ekki neitt svakalega góð lykt af honum og alveg viðbjóðslegt á bragðið ég neitað að drekka þetta þannig ég fékk þetta bara yfir mig alla lyktaði ógeðslega þannig ég henti bara peysunni, mjög margir ældu eftir að hafa fengið þetta uppí sig, ég persónulega hefði ekki kyngt þessu þó ég fengi 150.000 fyrir það. Svo vatnið sem við vorum látin fara ofaní það hefði alveg mátt vera 5 gráðum heitara.
Þetta var semsagt í heildina litið bara niðurlægjandi og leiðinlegt.
|
Varað við busavígslum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.4.2008 | 18:55
Furðulegt.
|
Sturla boðaður í skýrslutöku |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.4.2008 | 22:47
Skrítið
Það sagði mér kokkur á ónefndum veitingarstað, þeir kaupa íslenskan skötusel og íslenskar lambalundir frá bandaríkjunum og hingað komið er það þó nokkuð mikið ódýrara en að kaupa þessar vörur hér út í búð. Skrítið þjóðfélag.
|
Tollfríðindi skili sér í vasa almennings |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2008 | 07:38
Frábært framtak en ekki rétt samt frá
F4x4 eru ekki ábyrgir þessum mótmælum, einungis eru einstaklingar þaðan sem eru að taka þátt í þessu sem eithver skipulagði
En samt finnst mér þetta alveg stórkostlegt framtak. En hinsvegar ef þessir allir fá eithverja sekt þá á bara að setja upp styrktarsjóð. Þetta er nú fyrir allt fólkið í landinu.
|
Loka fyrir umferð olíubíla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)




ollana
landi
sibbulina
asdisran
svarthamar