Leita í fréttum mbl.is
Embla

Rugl

Skil ekki fólkið sem er á móti því að við séum að mótmæla. Skil ekki þessa grumpy gömlu fýlukalla sem eru að kvarta yfir mótmælum. Bara sorry en þú verður lööööööngu dauður þegar við erum ennþá að borga þessar helvítis skuldir sem ríkisstjórn er búin að skuldsetja okkur í, þetta var bara algjör fáviti sem var þarna í viðtali við Kastljósið í kvöld.
Lögreglan hagaði sér víst fáránlega í dag en í kvöld var hún mjög fín.

Við lentum á spjallinu við nokkra lögreglumenn, það tók pínu tíma að ná sambandi við þá í fyrstu. Þurftum að stara á einn þeirra í svona 30 mín sirka og þá byrjaði hann að tala og fékk bara munnræpu. Hann talaðu um allt milli himins og jarðar og allt sem hann sagði meikaði algjörlega sens. Hann var búinn að fá grjót og allan fjandann í sig í dag og var búinn að vera á vakt frá því klukkan 8 í morgun og stendur þar örugglega enn.
Lögreglurnar fjórar, vinir okkar voru alltaf að vara okkur við og sögðu meðal annars að við ættum að fara að passa okkur að standa svona nálægt þeim og þeir báðu okkur að lofa sér að við færum strax í burtu efað það væri kastað mikið meira í lögregluna. Þessar löggur voru bara mjög góðar þannig ég býst ekki við að löggan hafi gert e-h í dag nema það sem þeir þurfa að gera.

Lögreglurnar eiga líka fjölskyldur sem þær þurfa að hugsa um og þetta er vinnan þeirra sem þeir þurfa að halda. Löggurnar eru svo hjartanlega sammála okkur en ef þeir ætla að halda vinnunni þá mega þeir ekki mótmæla. Þó að þeir ganga nú stundum of langt þá held ég að við gætum nú líka róað okkur í sambandi við löggurnar. Hver var til dæmis ástæðan að ganga á eftir löggunni og berja hana í hausinn með sleif. Fólkið var bara að bíða eftir látum. Til hvers að ráðast á lögguna, hvað græða mótmælendur á því?

Frekar ætti það bara að ráðast á Geir H.Haarde og Davíð Oddson, það kemur mér nú bara á óvart að þeir séu báðir ennþá á lífi :)


mbl.is Beittu kylfum á mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Takk fyrir frábæran pistil Jóna María.

Langar að fá að setja link inn á síðuna mína.

Skil ekki þessa grumpy gömlu fýlukalla sem eru að kvarta yfir mótmælum.

Hefur þú einhversstaðar séð fólk mótmæla mótmælum?

Það sem ég hef séð á skrifum fólks hér á blogginu og í fréttum er að: Ég hef engan séð skrifa á móti mótmælum, en fólk hefur misjafnar skoðanir á því hvernig á að mótmæla. Sumir eru hlynntir hettugenginu, aðrir ekki. Sumir vilja grófara, aðrir fínna. Sumir samþykkja ofbeldi, aðrir ekki. Sumum finnst allt í lagi að fara með börnin á mótmælafund, öðrum ekki. Sumum finnst meira að segja í lagi að setja barnið sitt upp á pall, öðrum ekki. Sumum finnst allt í lagi að berja lögregluþjón í hausinn með priki, öðrum ekki.

Nú ert þú sjálf komin með skoðun á því hvernig þú vilt sjá mótmæli. Þú viðurkennir lögregluna sem menn, eins og þú ert.

Ég er bara eins og allir hinir, er að reyna að verða betri manneskja með hverjum deginum. Eitt af því er að ég vil engum gera neitt sem ég vil ekki að hann geri mér. Öll erum við mannlega og getum misst okkur en ég ákveð  ekki með fyrirvara að fara niður í bæ að hræða og hrekkja fólk. Mér er alveg sama hvort þeir séu lögreglumenn, almennir borgarar eða alþingismenn. Það hafa komið upp ýmsar aðferðir til að mótmæla en af einhverri ástæðu þá hafa bara verið notaðar þær sem líklegast er að endi með ósköpum. Af hverju skildi það vera?

Heyrðu en hafðu það gott

Anna Guðný , 21.1.2009 kl. 01:19

2 Smámynd: Sigurður Hrellir

Þessi grautarheili sem var í Kastljósinu er með bloggsíðu. Hann er einn af þeim sem ýmist mótmælir mótmælum eða gerir lítið úr þeim sem þar eru. Takið eftir að hann leyfir ekki fólki að skrifa athugasemdir við færslurnar sínar. Ég veit ekki hvort ég eigi að ergjast eða gleðjast yfir því að hann var fenginn í Kastljósið. Ég skora á Sigmar að fá næst barnaníðing í viðtal um misnotkun barna.

Sigurður Hrellir, 21.1.2009 kl. 02:06

3 identicon

Svona í allri þessari anarkíu sem virðist vera fara af stað poppar upp í hugan plagat sem hékk í anddyrinu á lögreglustöðinni í ónefndum bæ úti á landi. Sá það alltaf þegar ég og mamma fórum að heimsækja pabba í vinnuna.
"mamma verðuru heima um jólin" spyr lítill drengur mömmu sína sem stendur í lögreglubúning við hliðina á lögreglubíl..

Hugur minn er í augnablikinu hjá fjölskyldum þessara manna/kvenna (hetja) sem standa vörð um alþingishúsið. Ekki öfundsvert fyrir fjölskylduna að hugsa til þess að pabbi, mamma, afi, amma, sonur eða dóttir séu  úti í kuldanum ataður úti í skyri eða sár eftir grjótkast..
Þegar ég sagði hetjur þá var það ekki vegna þess að þeir er að verja stjórnvöld, heldur vegna þess að þeir standa sína vakt hvað sem bjátar á. Ég get lofað ykkur því að þeir eru ósáttir eins og við hin en þeir verða að vinna sína vinnu vilji þeir halda henni... 

Viljum við ekki öll halda vinnunni og komast heil heim til ástvina okkar? =/
En allavega, þetta er bara það sem ég er að hugsa í augnablikinu.

David (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 02:12

4 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Sammála ykkur. Það græðir engin á því að ráðast að vinnandi lögreglumönnum, það er ekki það sem við þurfum.

Hulda Margrét Traustadóttir, 21.1.2009 kl. 06:56

5 identicon

Löggan þarf nú aðeins að passa sig. Varð vitin af því áðan þegar löggan var að koma Geir frá Stjórnarráðinu. Ein löggan hljóp töluvert á undan bílnum með kylfuna á lofti, það var kona sem var að fara yfir götuna á grænuljósi og löggan kemur hlaupandi og hrindir konunni frá!!!!!!!!!!! mesta furða að þeir skildu ekki gasa leiðina.

Helena Sigurbergsdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna María Þorgeirsdóttir
Jóna María Þorgeirsdóttir
.
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband